Helle Siljeholm + Mazen Maarouf & Lisa Gilardino
WAITING FOR THE ELVES
Laugardagur 15. nóvember 12:00 - 15:00
Heimahús í 101 RKV - nánari staðsetning fylgir miða
2900/4900/6900 ISK
Aðgengi:
Waiting for the elves er verk sem var sérstaklega samið fyrir RDF. Í Reykjavík skapar Helle Siljeholm verkið í samvinnu við ítalska sýningarstjórann Lisu Gilardino og Mazen Maarouf, palestínskt skáld, þýðanda og blaðamann. Sýningin fer fram á heimili Mazens, sem vekur hughrif um Godot, um absúrdisma, kyrrð, pólitík og anda. Titillinn ýjar bæði að lotningu og íroníu, og ef til vill einhverju fleira - vilja til að trúa, eða til að frelsa sig undan vantrúnni. Trúin er nefnilega - rétt eins og jarðfræði, eins og sviðslistir - marglaga og á stöðugri, hægri hreyfingu.
Waiting for the elves er samvinnuverkefni skáldsins Mazen Maarouf, sýningarstjórans Lisu Gilardino og danshöfundarins og myndlistarkonunnar Helle Siljeholm.
Helle Siljeholm er myndlistarkona og danshöfundur sem býr og starfar í Osló og leggur stund á doktorsnám við Kunsthøgskolen i Oslo. Listsköpun hennar spannar kvikmyndalist, gjörninga, skúlptúra, kóreógrafíu og sviðslistir. Verk hennar hafa verið sýnd víða í heimalandinu og erlendis. Rannsóknir hennar lúta að landfræðilegum fyrirbærum á borð við fjöll og landmótun, og mannlegar, náttúrulegar og menningarlegar tengingar þeirra við jarðsögulegan tíma, samtímann og mögulega framtíð. Verk Helle, rannsóknir og nálgun hafa orðið fyrir miklum áhrifum af þátttöku hennar síðasta áratuginn í ýmsum samstarfsverkefnum í Mið-Austurlöndum (Líbanon, Palestínu og Jórdaníu).
www.themountainbody.com/ www.hellesiljeholm.com
Mazen Maarouf (1978) er palestínskt skáld, þýðandi og blaðamaður. Hann fæddist í Beirút og hefur sent frá sér þrjú ljóðasöfn: The Camera Doesn’t Capture Birds, Our Grief Resembles Bread, An Angel Suspended On a Clothesline, þrjú smásagnasöfn: Brandarar handa byssumönnunum, Rats that Licked the Karate Champion’s Ears og Sunshine on a bench of Substitutes auk einnar nóvellu sem nefnist Curse of Mud-balls Kid. Hann hlaut LiteraturLana-ljóðaverðlaunin og Al-Multaqa-verðlaunin fyrir besta smásagnasafnið. Hann hefur verið á langlista Man Booker International Prize og Edinburgh Book Festival Award og einnig á stuttlista fyrir Saif Ghobash Banipal Prize.
Lisa Gilardino er sýningarstjóri sem býr í Bologna. Síðustu tuttugu árin hefur hún stýrt listahátíðum, stjórnað menningarstofnunum og framleitt og þróað list á alþjóðavettvangi. Meðal annars var hún einn stjórnenda Santarcangelo Festival, elstu nútímalistahátíðar Ítalíu, einn stofnenda Samara Editions-Performances by Post sem gefur út verk sem send eru þátttakendum í pósti, og hún var einn stjórnenda Høstscena-hátíðarinnar í Ålesund í Noregi. Árið 2024 stýrði hún The Sea of Rocks eftir Helle Siljeholm, dansverki fyrir fjall, fimm klifrara og tónlistarmann sem fram fór á fjórum þverhníptum klettum í stórfenglegu landslagi Dólómítafjalla. Lisa elskar fjallgöngur og óvæntar uppákomur.
Verkið var pantað af RDF, með stuðningi frá Perform Europe/Mountain Range Beyond Borders.
Helle Siljeholm + Mazen Maarouf & Lisa Gilardino
WAITING FOR THE ELVES
Saturday 15th November 12:00 - 15:00
In a home in 101 RVK, address displayed on ticket
2900/4900/6900 ISK
Access:
Waiting for the elves is a new commission for RDF. It is the final work in a series by Helle Siljeholm based around research on volcanic grounds in Europe funded by Perform Europe and curated by Lisa Gilardino. The work hosted at Mazen’s home in Reykjavík is a nod to Godot, to absurdism, to stillness, to politics, to spirits. A title that suggests both reverence and irony. And maybe something else: a willingness to believe, or to suspend Disbelief. Because belief — like geology, like performance — is layered, tectonic, a slow-motion shift.
Waiting for the elves was developed by writer Mazen Maarouf, curator Lisa Gilardino and choreographer and visual artist Helle Siljeholm.
Helle Siljeholm is a visual artist and choreographer based in Oslo (NO), currently pursuing a PhD at the Oslo National Academy of the Arts. Her artistic practice spans film, installation, sculpture, choreography, and performance. Her work is exhibited and presented nationally and internationally. Her research project explores geological entities such as mountains and land formations, and their human, nature, culture entanglements within geological time, present, and possible futures. Helle´s artistic work, research and practice is much influenced by 10 years of working in various artistic collaborative projects in the Middle East (Lebanon, Palestine and Jordan). www.themountainbody.com/ www.hellesiljeholm.com
Mazen Maarouf (1978) is a Palestinian writer, translator and journalist. Born in Beirut, he has published three poetry collections: “The Camera Doesn’t Capture Birds”, “Our Grief Resembles Bread”, “Angel Suspended On a Clothesline”, three short story collections: “Jokes for the Gunmen”, “Rats that Licked the Karate Champion’s Ears” and “Sunshine on a bench of Substitutes” and one novella titled “Curse of mud- ball Kid”. He was awarded and LiteraturLana prize for poetry and Al-Multaqa prize for best short story collection and was longlisted for Man Booker International Prize, longlisted for Edinburgh Book festival Award and shortlisted for Saif Ghobash Banipal Prize.
Lisa Gilardino is a curator based in Bologna (IT). She has been working for twenty years curating festivals, leading cultural institutions, producing and internationally developing artists’ creations. Among other things she co-directed Santarcangelo Festival, the major and oldest Italian festival for contemporary creation, co-founded Samara Editions-Performances by Post, a publishing house for performative arts commissioning new works to be sent to spectators by post and co- curated Høstscena festival in Ålesund, Norway. In 2024 she curates The Sea of rocks by Helle Siljeholm a choreography for and with a mountain, five climbers and a live musician, set across four vertical cliff faces in an absolutely breathtaking scenery in the Dolomites. She loves hiking and being surprised.
A commission by Reykjavik Dance Festival 2025, made possible with the support of Perform Europe as part of The Mountain Range Beyond Borders project