-
„Þessir róbótar finna ekki til, en við finnum til með þeim.“ Kate Darling
Á Reykjavík Dance Festival í ár verður ykkur boðið einum inn í herbergi þar sem þið hittið fyrir vélhund.
Við vitum að vélar finna ekki til.
En við getum ekki annað en fundið til með þeim.
Við erum tilfinningavélar.
Í verkinu CLAP & SLAP takast þau Agnietė Lisičkinaitė frá Litháen og Igor Shugaleev frá Belarús á við sekt og ábyrgð í skugga árásarstríðs Rússa í Úkraínu. Þau slá eigin líkama þar til húðin roðnar.
Við erum beðin um að klappa í takt.
Þau slá. Við klöppum.
Höggin dynja ekki á líkama okkar. En við finnum fyrir þeim á húðinni.
Í EPICLOGUE mætast tveir líkamar sem gefa sig hvor öðrum á vald. Í krafti trausts fikra þeir sig nær því sem er líkamlega og tilfinningalega ómögulegt.
Hvernig upplifum við okkar eigin þrá eftir nánd þegar við verðum vitni að svo innilegum athöfnum?
Hreyfing skapar tilfinningar. Tilfinningar hreyfa við okkur. Við hreyfum hvert við öðru.
Hvað sem það er sem þú finnur fyrir – taktu það með þér.
Við finnum ekki öll fyrir því sama.
En við finnum öll fyrir einhverju.
VIÐ FINNUM ÖLL FYRIR ÞVÍ. -
“These robots can’t feel, but we feel for them.” Kate Darling
At this year’s Reykjavík Dance Festival, you will be invited into a room, alone, with a robot dog.
We know machines don’t feel.
But we can’t help but feel for it.
We are feeling machines.
In CLAP & SLAP, Lithuanian Agnietė Lisičkinaitė and Belarusian Igor Shugaleev confront guilt and responsibility in the shadow of Russia’s war in Ukraine. They slap their own bodies until their skin turns red.
We are asked to clap along.
They slap. We clap.
The slap doesn’t hit your body. But you feel it on your skin.
In EPICLOGUE, two bodies hold, carry and expose themselves to one another. Through trust, they push towards the physically and emotionally impossible.
What does witnessing such profound intimacy make you feel about your own desire for closeness?
Movement creates feelings. Feelings move us. We are moved by one another.
Whatever you are feeling, bring it with you.
We don’t all feel the same.
But we all feel.
WE ALL FEEL IT.