Jafnræði og inngilding í verki: Ábyrgð menningarstofnana
Laugardagur 14. nóvember 12:00 - 14:00
Norræna Húsið, Sæmundargata 11
Aðgangur ókeypis!
Smellið hér fyrir upplýsingar um aðgengi
Hvað felst í jafnræði og inngildingu og hvers vegna skiptir það máli? Hvernig geta menningarstofnanir skapað rými þar sem fólk upplifir að á það sé hlustað, að það fái að njóta sín og að það sé raunverulega velkomið? Og hvaða ábyrgð fylgir því hlutverki?
Norræna húsið og Reykjavík Dance Festival bjóða til málþings þar sem þessar spurningar verða teknar til umfjöllunar, með sérstakri áherslu á hvernig menningarstofnanir geta stuðlað að fjölbreyttu, inngildandi og aðgengilegu menningarlífi.
Menningarstofnanir geta verið mikilvægir vettvangar fyrir samtal og þátttöku. Þær geta leitt fólk saman þvert á ólíkan bakgrunn, eflt traust í samfélaginu og styrkt tilfinningu fólks fyrir því að það eigi þar hlutdeild. En hvernig tryggjum við að menning sé í raun aðgengileg og fyrir alla?
Dagskrá:
Ávarp: Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins.
Erindi: Chisom Udeze, framkvæmdastjóri Diversify, og Phyllis Akinyi, verkefnastýra listamannaumönnunar hjá HAUT.
Pallborðsumræður með:
Chisom Udeze, Phyllis Akinyi, Örnu Kristínu Einarsdóttur, skrifstofustjóra menningar og fjölmiðla í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Sonya Lindfors, danshöfundi og listrænum stjórnanda, Pétri Ármannssyni, stjórnanda Reykjavík Dance Festival.
Fundarstjóri er Susanne Næss Nielsen, framkvæmdastjóri Festspillene í Norður-Noregi.
Tungumál: Enska
Equity and Inclusion in Practice
Saturday 14th November 12:00 - 14:00
Nordic House, Sæmundargata 11
Free entry!
Click here for accessibility information
What does equity and inclusion mean in practice, and why does it matter? What role can cultural institutions play in creating spaces where people feel seen, represented and genuinely welcome – and what responsibilities come with that role?
The Nordic House and Reykjavík Dance Festival invite you to a seminar exploring these questions and examining how cultural institutions can contribute to a diverse, inclusive and accessible cultural life.
Cultural institutions can be important spaces for encounter, dialogue and participation. They can bring people together across differences, strengthen social trust and create a sense of belonging. But how can we ensure that culture is truly inclusive and accessible to all?
Programme:
Opening words by Sabina Westerholm, Director of the Nordic House.
Presentations by Chisom Udeze, Executive Director of Diversify, and Phyllis Akinyi, Project Lead on Artist Care at HAUT
Panel discussion with: Chisom Udeze, Phyllis Akinyi, Arna Kristín Einarsdóttir, Director of Culture and Media at the Ministry for Culture, Innovation and Higher Education, Sonya Lindfors, Choreographer and Artistic Director, and Pétur Ármannson, Co-director of Reykjavík Dance Festival.
The event will be moderated by Susanne Næss Nielsen, Director of Festspillene in Northern Norway.
Language: English