TB poster no text.jpg

Rósa Ómarsdóttir: Sérstæðan Iceland Moves

Rósa Ómarsdóttir (IS)
SÉRSTÆÐAN
Miðvikudagur 11. nóvember 19:00 - 20:15
Tjarnarbíó

ISK
Aðgengi: Tjarnarbíó er með hjólastólaaðgengi.

Umhyggju upplýsingar: Notast er við blikkljós og leiser

Sérstæðan er þverfaglegt dansverk þar sem kóreógrafía, ljóð, tónlist og sviðsmynd renna saman í eitt. Í óræðri framtíð syngur Vera um tilvist sína eftir að hafa yfirgefið líkamann og hlaðið sér upp á alnetið. Hún lifir nú einungis í gegnum hugsanir sínar og minningar um heiminn sem var. Hvernig er tilvera án líkama, holds og snertingar? Hvernig verður heimurinn ef við getum ekki lengur skynjað hann og upplifað hluti á borð við sársauka og nautn? Og hvað verður um dans ef líkaminn hverfur? Í verkinu breytist sviðið sjálft í flytjanda þar sem hljóð, ljós, vatn og reykur dansa.

Verkið sprettur úr hugmyndinni um sérstæðuna (e. singularity) – tilgátu innan tæknivísinda um tímapunkt í framtíðinni þegar tæknivöxtur verður orðinn óviðráðanlegur og leiðir til óafturkræfra breytinga á manneskjunni. Verkið veltir upp spurningum um framtíð líkamans. Munum við að endingu skilja endanlega við hann og eftirláta tækninni tilvist okkar? Munum við hætta að sjá og skynja hvort annað? Sérstæðan er óður til líkamans og skynfæranna og vangaveltur um hvað verður eftir ef þau hverfa.

Rósa Ómarsdóttir er danshöfundur sem vinnur þvert á miðla. Verk hennar flétta saman kóreógrafíu, lifandi hljóðmynd og myndlist með femínískri nálgun á dramatúrgíu. Í verkum sínum kannar Rósa möguleika ómannlegs efnis sem lifandi hlutar og leitast eftir að virkja skynjun áhorfenda á sem fjölbreyttastan máta.

Rósa hefur sýnt víða um Evrópu og verið í listrænu samstarfi við ýmsar virtar stofnanir. Verk hennar hafa hlotið fjölda Grímutilnefninga og verið verðlaunuð fyrir kóreógrafíu, sviðsmynd og hljóðmynd.
www.rosaomarsdottir.com 

Höfundur, listrænn stjórnandi & danshöfundur: Rósa Ómarsdóttir
Flytjandi & söngvari: Inga Huld Hákonardóttir
Tónskáld: Sveinbjörn Thorarensen
Sviðsmynd & tækni: Rósa Ómarsdóttir ásamt teymi: Sean Patrick O’Brian, Valdimar Jóhannsson, Katarina Blahutova & Owen Hindley
Ljósahönnun: Katerina Blahutova
Búningahöfundur: Karen Briem
Dramatúrg: Anna María Tómasdóttir
Framleiðandi: Ragnheiður Maísól Sturludóttir, MurMur Productions
Listrænir ráðgjafar: Halla Þórðardóttir, Saga Sigurðardóttir & Katrín Gunnarsdóttir
Textaráðgjafar: Halla Þórðardóttir, Björn Halldórsson & Anna María Tómasdóttir
Starfsnemar: Anna Schou & Vivi Kyriakidou

Styrkt af Sviðslistasjóði og Launasjóði listamanna.


Rósa Ómarsdóttir (IS)
SÉRSTÆÐAN
Wednesday 11th November 19:00 - 20:15
Tjarnarbíó

ISK
Access: Tjarnarbíó has wheelchairaccess.

Care information: Strobes & lasers

 

Sérstæðan is an interdisciplinary dance performance where choreography, poetry, music, and scenography merge into one. A being from the future tells her story. She has left her body behind and uploaded herself to the digital ether. She lives only through thoughts and memories of the world that once was.
What does it mean to exist without flesh, without touch? What happens when pain and pleasure vanish, when we can no longer sense each other? And what becomes of dance, when the body is gone? 
The stage itself becomes the performer. Sound, light, projection, water, and smoke become the main characters. Only the audience’s bodies remain—keeping the imagined worlds alive in real time.
Born from the idea of the technological singularity, a future moment when technology grows beyond control, Sérstæðan questions the fate of the human body. Will we surrender it completely? Will we lose the ability to see and feel one another?
Sérstæðan is both ode and elegy: a tribute to the body and the senses, and a haunting reflection on what might remain when they disappear

Rósa Ómarsdóttir is an interdisciplinary choreographer whose work explores the relationship between humans and nature, seeking non-anthropocentric narratives. She creates ecosystems of humans, non-humans, and invisible forces, interweaving choreography, live soundscapes, and visual art with a feminist dramaturgy that embraces vulnerability and flux.
Her work has been presented at international festivals, theatres, galleries, and museums. She was a fellow at Akademie Schloss Solitude in 2021 and has held residencies worldwide. Rósa has received Icelandic Theatre Awards for soundscape, scenography, and choreography, along with multiple nominations.
www.rosaomarsdottir.com 

Author, artistic director and choreography: Rósa Ómarsdóttir
Performer and singer: Inga Huld Hákonardóttir
Composer: Sveinbjörn Thorarensen
Set & tech: Rósa Ómarsdóttir with the team of: Sean Patrick O’Brian, Valdimar Jóhannsson, Katarina Blahutova and Owen Hindley
Light Design: Katerina Blahutova
Costumes: Karen Briem
Dramaturg: Anna María Tómasdóttir
Producer: Ragnheiður Maísól Sturludóttir, MurMur Productions
Artistic Advisors: Halla Þórðardóttir, Saga Sigurðardóttir and Katrín Gunnarsdóttir
Text Advisors: Halla Þórðardóttir, Björn Halldórsson and Anna María Tómasdóttir
Interns: Anna Schou and Vivi Kyriakidou

The work is supported by The Icelandic Artist’s Salary Fund and the Performing Arts Fund