Bára Sigfúsdóttir
Hrygg
Fimmtudagur 12. nóvember 21:00 - 22:00
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Tryggvagta 17
3900 - 6900 kr.
Smellið hér fyrir upplýsingar um aðgengi
Hryggr er ljóðrænt verk sem höfðar til allra skynfæra; þar sem líkami mætir hafi og mörk manneskjunnar, náttúrunnar og fantasíunnar leysast smám saman upp. Með hreyfingu tekur líkaminn hægt og rólega á sig nýtt form; þannig opnast rými fyrir annars konar myndir, hrynjandi og orku. Líkami, hljóð og rými renna saman í einn heim þar sem flakkað er á milli þess áþreifanleika og þess draumkennda, á milli raunveruleika og ímyndunar. Áhorfendum býðst að hugleiða sín eigin tengsl við hafið, við náttúruna og hið óþekkta.
Titillinn Hryggr hefur tvöfalda merkingu; sem nafnorð og sem sagnorð. Orðið getur skírskotað til Mið-Atlantshafshryggjarins, sem úr geimnum líkist gríðarstórri hryggjarsúlu sem þræðir sig gegnum hafið, en einnig til sorgarinnar sem vaknar við náttúrueyðingu okkar tíma.
Verkið er samið af danshöfundinum Báru Sigfúsdóttur í samstarfi við tónskáldið Eivind Lønning og listakonuna Andreu Kränzlin sem býr og starfar í Antwerp.
Bára Sigfúsdóttir er þekkt fyrir líkamlega nákvæm og djúpstæð verk, þrungin ljóðrænu næmi. Verk hennar hafa verið sýnd á ýmsum sýningarstöðum og hátíðum víða um heim, svo sem á Feneyjatvíæringnum, Listahátíð í Reykjavík, Ice Hot Nordic Dance Platform, Tanzmesse, Performatik og Julidans, svo fátt eitt sé nefnt.
Kóreografía, fytjandi & listræn stjórnun: Bára Sigfúsdóttir
Tónskáld & lifandi flutningur tónlistar: Eivind Lønning
Sviðsmynd & búningar: Andrea Kränzlin
Ljósahönnun: Shiva Sherveh
Utanaðkomandi auga: Sara Vanderieck, Birgit Berndt, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Margrét Bjarnadóttir & Orfee Schuijt.
Styrkt af: Henie Onstad Kunstsenter, CODA Oslo International Dance Festival, Bærum Kulturhus, Kulturdirektoratet Scenekunst – danseproduksjoner, Kulturdirektoratet, Norsk-Islandsk Kultursamarbeid, FFUK, Reykjavik Dance Atelier, Praxis Oslo.
Þakkir til: Espen Reinertsen and Tony Tran
Bára Sigfúsdóttir
Hryggr
Thursday 12th November 21:00 - 22:00
Reykjavík Art Museum - Hafnarhús, Listabraut 3
The performance Hryggr is a poetic and sensorial encounter between the body and the ocean, where the boundaries between human, nature and fantasy gradually dissolve. Through movement, the body slowly transforms, opening space for changing images, rhythms, and energies. Body, sound and space merge into a universe that moves between the tangible and the dreamlike, between reality and imagination. Audiences are invited to reflect on their own connection to the sea, to nature, and to the unknown.
The title Hryggr derives from Old Norse and carries a double meaning: as a noun it means “spine”, and as an adjective it means “sad”. The word may refer to the Mid-Atlantic Ridge, which from space resembles a giant spine running through the ocean, but also to the grief associated with the environmental destruction of our time.
Hryggr is created by Icelandic choreographer Bára Sigfúsdóttir in collaboration with composer Eivind Lønning and Antwerp-based artist Andrea Kränzlin.
Bára Sigfúsdóttir is an internationally recognized Icelandic artist whose work is known for its physical precision, conceptual depth, and strong poetic sensibility. Bára’s performances have been presented at national and international venues and festivals, including Venice Biennale, Reykjavik Arts Festival, Ice Hot Nordic Dance Platform, Tanzmesse, Performatik and Julidans, among others.
3900 - 6900 ISK
Click here for accessibility information
Choreography, Performer & Artistic Direction: Bára Sigfúsdóttir
Music created & performed live by: Eivind Lønning
Scenography & costume: Andrea Kränzlin
Light design: Shiva Sherveh
Outside eyes: Sara Vanderieck, Birgit Berndt, Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, Margrét Bjarnadóttir & Orfee Schuijt.
Supported by: Henie Onstad Kunstsenter, CODA Oslo International Dance Festival, Bærum Kulturhus, Kulturdirektoratet Scenekunst – danseproduksjoner, Kulturdirektoratet, Norsk-Islandsk Kultursamarbeid, FFUK, Reykjavik Dance Atelier, Praxis Oslo.
Thanks to: Espen Reinertsen and Tony Tran