6a88741614a345e07195ff56_Mynd-3 - Sveinbjörg Þórhallsdóttir.jpg

Heyrðu mig

Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Heyrðu mig
Sunnudagur 14. nóvember 15:30 - 16:20
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12

Verkið Heyrðu mig er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur sem fæddist með takmarkaða heyrn en fór sem barn í kuðungsígræðslu. Hún hefur síðan þá skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur Heyrðu mig en hún er einnig móðir Diljár. Dansverkið segir frá ferðalagi Diljár, frá bernsku til dagsins í dag, þar sem baráttan, þrautseigjan, líf og list flæða inn í hreyfingu, rytma og líkama. Dansverkið er flutt inn í innsetningu eftir Jóní Jónsdóttur en innsetningin byggir á eyranu sjálfu, bifhárunum og kuðungnum. Urður Hákonardóttir gerir tónlist og hljóðmynd og Kjartan Darri Kristjánsson gerir lýsingu.

Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur sem í verkum sínum rannsakar tengsl innri skynjunar og líkamlegrar tjáningar. Hún lauk dansnámi í New York og er með meistaragráðu í kóreógrafíu frá Fontys-háskólanum í Hollandi.
Listsköpun hennar byggist á leit að einlægni í hreyfingu, að sannleikanum sem birtist þar sem tími, skynjun og nærvera mætast. Með hugleiðslu og djúpri tengingu við innri skynjun líkamans skapar hún aðstæður þar sem hreyfingar geta sprottið fram á einlægan og lífrænan hátt, mótaðar af reynsluheimi og upplifun dansarans.
Sveinbjörg hefur starfað víða á sviði dans- og sviðslista, bæði í Reykjavík og á alþjóðlegum vettvangi, og hlotið fjölda tilnefninga og viðurkenninga fyrir verk sín. Hún er einn af stofnendum Reykjavík Dance Festival (2002) og Dansverkstæðisins (2010). Á árunum 2011–2021 gegndi hún stöðu prófessors og fagstjóra samtímadans við Listaháskóla Íslands.

Danshöfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Dansari: Diljá Sveinsdóttir
Sjónrænt útlit: Jóní Jónsdóttir
Tónlist: Urður Hákonardóttir
Lýsing: Kjartan Darri Kristjánsson
Aðrir dansarar: Bjartey Elín Hauksdóttir, Júlía Kolbrún Sigurðardóttir, Lísbet Sveinsdóttir, Sóley Ólafsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Listræn ráðgjöf: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Ljósmynd á plakati og af sýningu: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir


Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Hear Me Out
Sunday 15th November 15:30 - 16:20
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12

 

Heyrðu mig (i.e. Hear Me Out) is a dance work inspired by the life of dancer Diljá Sveinsdóttir, who was born with limited hearing but underwent a cochlear implant as a child. Since then, she has forged a path as a professional dancer and artist. Sveinbjörg Þórhallsdóttir is the choreographer of Heyrðu mig and is also Diljá’s mother. The dance work tells the story of Diljá’s journey from youth until present day, where struggle, perseverance, life, and art flow into movement, rhythm and the body. The dance work is performed within an installation by Jóní Jónsdóttir, which is based on the ear itself; the cilia and the cochlea. Music and soundscape are by Urður Hákonardóttir and light design by Kjartan Darri Kristjánsson.

Sveinbjörg Þórhallsdóttir is an Icelandic choreographer whose work explores the relationship between inner states and physical expression. She holds a dance degree from New York and an MA in Choreography from Fontys University of Applied Sciences in the Netherlands. Her practice is rooted in a search for authenticity in movement—where time, sensation, and presence converge. Through meditation and deep attunement to the body's internal impulses, she creates spaces where movement can emerge intuitively, shaped by the dancer's lived experience.

 

Choreographer: Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Dancer: Diljá Sveinsdóttir
Visual design: Jóní Jónsdóttir
Music: Urður Hákonardóttir
Lighting design: Kjartan Darri Kristjánsson
Other dancers: Bjartey Elín Hauksdóttir, Júlía Kolbrún Sigurðardóttir, Lísbet Sveinsdóttir, Sóley Ólafsdóttir, Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Artistic advisor: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Photograph on poster and from exhibition: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir