Aðalheiður Halldórsdóttir & Jónsi + Íslenski Dansflokkurinn (IS)
FLÓÐREKA
Föstudagur 13. nóvember 19:30 - 20:30
Nýja svið, Borgarleikhúsið
7100 - 7900 ISK
Aðgengi: Borgarleikhúsið er með hjólastólaaðgengi og aðgengileg salerni
minntu mig, náttúra, á náttúruna í mér
Flóðreka er nýtt dansverk sem sprettur upp úr spennandi samstarfi danshöfundarins Aðalheiðar Halldórsdóttur, Jónsa úr Sigur Rós og Íslenska dansflokksins. Verkið er innblásið af hinni rómuðu sýningu Jónsa, Flóði, sem sýnd var í National Nordic Museum í Seattle og í Listasafni Reykjavíkur.
Í Flóðreka mætast hljóð, hreyfing, ilmur og umlykjandi heimur í skynrænni könnun á sambandi okkar við náttúruna – og hvort annað.
Jónsi er þekktur fyrir tilfinninganæma og angurværa hljóðheima sína. Verk hans fjalla oft á tíðum um hráa og yfirþyrmandi krafta náttúrunnar. Nálgun Aðalheiðar snýr að mennskunni. Viðkvæmni og seiglu mannlegs eðlis og hvötinni til að leita merkingar og tengsla, jafnvel andspænis ringulreiðinni.
“Fáránleiki og fegurð brothættrar mennsku, sem sífellt þvælist bæði fyrir og í sjálfri sér. Í eilífri leit að merkingu gleymist oft að það er öldugangur ólgandi úthafa sem rís og hnígur í brjósti mannsins.
Athugið: Í sýningunni blikka ljós mjög reglulega í gegnum allt verkið, og hljóð ferðast um allt rýmið, umhverfis áhorfendur. Áhorfendur sitja í návígi við flytjendur. Vinsamlegast hafið þetta í huga ef þið eruð viðkvæm fyrir sterku ljósi eða hljóði. Einnig fyllir lykt frá Fischersund rýmið, ilmur sem ber með sér keim af hafinu.
Aðalheiður Halldórsdóttir stundaði dansnám við Listdansskóla Íslands, Tanz Akademie Köln, Þýskalandi, danshöfundanám við ArtEz University of the Arts, Arnhem, Hollandi og síðar nám í Bókmenntafræði og Ritlist við Háskóla Íslands.
Aðalheiður var fastráðinn dansari við Íslenska Dansflokkinn í um 16 ára skeið og sem slíkur, var hún hluti af sköpunarferli um 50 smárra og stórra sviðsverka innan veggja Borgarleikhússins sem mörg hver túruðu um heiminn. Hún hefur jafnframt dansað, sungið og leikið í uppfærslum Íslensku Óperunnar, Leikfélags Reykjavíkur og ótal verkum innan sjálfstæðu danssenunnar.
Sem höfundur hefur Aðalheiður samið verk fyrir Íslenska dansflokkinn, Reykjavík Dance Festival og Ég býð mig fram, séð um sviðshreyfingar í leiksýningum Borgarleikhússins, unnið að gerð tónlistarmyndbanda og stuttmynda og sviðsett viðburði innan tónlistarvettvangsins þá helst með tónlistarkonunni Bríeti. Hún hefur auk þessa gegnt stöðu aðstoðarleikstjóra og leikstjóra.
Aðalheiður hefur verið hluti af listrænum kollektívum á við: Vaðall ásamt Valgerði Rúnarsdóttur og Darra Lorenzen, listamannkórnum Kliði, Die to meet you ásamt Kristínu Önnu Valtýsdóttur og síðustu ár stigið inn í performatíva viðburði Anne Carsson og Robert Currie bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur samhliða þessu sinnt ritstörfum og m.a. gefið út ljóðabókina Taugatrjágróður hjá útgáfu Bjarts & Veraldar.
Aðalheiður hefur hlotið fjölda Grímutilnefninga og verðlauna fyrir störf sín sem dansari, leikkona, danshöfundur og höfundur sviðshreyfinga í leikverki.
Jónsi er heimsþekktur þverfaglegur listamaður sem hefur í áratugi skapað dulúðuga hljóðheima með fagurfræði sem sameinar hið lágstemmda, klassíska og framsækna. Hann hlaut fyrst alþjóðlega athygli sem söngvari Sigur Rós en hefur einnig gefið út þrjár sólóplötur og unnið með listamönnum á borð við Elizabeth Fraser, Robyn og Alex Somers. Sérkennileg nálgun hans, meðal annars bogaleikur á gítar, hefur víkkað út mörk tónlistar.
Hann hefur starfað með tónlistarmönnum, myndlistarmönnum og kvikmyndagerðarmönnum á borð við Doug Aitken, Merce Cunningham og Ólaf Elíasson og hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna. Árið 2018 sneri hann sér einnig að myndlist og hefur síðan haldið einkasýningar í Los Angeles, New York og á virtum söfnum víða um heim, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur.
Jónsi er jafnframt sjálfmenntaður ilmvatnsgerðarmaður og stofnaði vörumerkið Fischersund ásamt systrum sínum í Reykjavík. Ilmverk hans fléttast saman við myndlist og tónleika og hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi.
Jón Þór „Jónsi“ Birgisson fæddist á Íslandi árið 1975 og er búsettur í Los Angeles.
Danshöfundur: Aðalheiður Halldórsdóttir
Tónlist og hljóðhönnun: Jón Þór Birgirsson (Jónsi)
Búningahönnuður: Arna Inga Arnórsdóttir
Ljósahönnun: Jónsi og Isaac Cohen
Tæknihönnuður: Damon Dorsey
Tæknistjóri: Jóhann Friðrik Ágústsson
Dansarar: Andrean Sigurgeirsson, Brian Gerke, Elín Signý Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Shota Inoue & Una Björg Bjarnadóttir
Aðalheiður Halldórsdóttir & Jónsi + Icelandic dancecompany (IS)
FLODREKA
Friday, 13th November 19:30 - 20:30
The New Stage, Borgarleikhúsið
7100 - 7900 ISK
Access: Borgarleikhúsið has wheelchair access and accessible toilets
Flodreka is a new work born from an exciting collaboration between choreographer Aðalheiður Halldórsdóttir, multi-disciplinary artist and musician Jónsi (Sigur Rós), and the Iceland Dance Company.
Inspired by Jónsi’s renowned exhibition Flóð—shown at the National Nordic Museum in Seattle and later at Reykjavík Art Museum. Flodreka brings together sound, movement, scent and immersive visual design in a sensory-rich exploration of our relationship to nature and to each other.
Jónsi is known globally for his emotionally resonant, atmospheric soundscapes and while his work focuses on the raw and often overwhelming power of nature, Aðalheiður brings the human dimension into the equation: vulnerability, resilience, and the instinct to seek meaning and connection even in the face of chaos.
Together, they craft a work that questions our desire to control the uncontrollable. In our effort to rationalize the world, we often forget that the forces we attempt to master, move through us as much as around us.
“The beauty and absurd fragility of the human condition- endlessly tangled in itself and in each other, chasing meaning, inventing importance, forgetting that nature's forces and rhythms are the ones pulsing in their chests.”
Aðalheiður Halldórsdóttir is a dancer, choreographer, director, and writer who trained in Iceland, Germany, and the Netherlands, later studying literature at the University of Iceland. She was a member of the Iceland Dance Company for 16 years, performing in around 50 works that toured internationally, and has appeared with the Icelandic Opera, Reykjavík City Theatre, and the independent scene. Her creative work spans choreography for stage and festivals, directing movement in theatre, music videos, and collaborations with musicians such as Bríet. She has been part of artistic collectives including Vaðall, Kliður, and Die to meet you, and has worked with artists like Anne Carson and Robert Currie. Also an author, she published the poetry collection Taugatrjágróður, and has received multiple Gríman Award nominations and prizes across her career.
Iceland Dance Company is the leading force in the Icelandic dance scene, creating and presenting new works both locally and internationally while fostering public engagement with the art form. The company has pushed the boundaries of contemporary dance through interdisciplinary collaboration with musicians, visual artists, and institutions. Its innovative approach—blending dance with film, music, and visual arts—has earned it a reputation as one of Europe’s most progressive dance companies, working with renowned artists like Björk, Sigur Rós, and Ragnar Kjartansson. With a diverse ensemble of talented dancers and regular performances at prestigious global venues, the company also supports emerging talent through partnerships with the Iceland University of the Arts and international exchange programs.
Choreographer: Aðalheiður Halldórsdóttir
Music and Sound: Jón Þór Birgisson (Jónsi)
Costume Design: Arna Inga Arnórsdóttir
Light Design: Jónsi og Isaac Cohen
Technical Design: Damon Dorsey
Technical Director: Jóhann Friðrik Ágústsson
Dancers: Andrean Sigurgeirsson, Brian Gerke, Elín Signý Ragnarsdóttir, Emilía Benedikta Gísladóttir, Erna Gunnarsdóttir, Eydís Rose Vilmundardóttir, Shota Inoue & Una Björg Bjarnadóttir