Gleym-mér-ei - Snædís Lilja Ingadóttir & Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Konukroppar
Sunnudagur 15. nóvember 12:00 - 12:50
Sundhöll Hafnarfjarðar, Herjólfsgata 10b
3900 - 6900 kr.
KONUKROPPAR snúa aftur í Sundhöll Hafnarfjarðar!!!
Verkið hefur slegið í gegn og komið áhorfendum á óvart hér á landi sem og erlendis!!
Vertu með þegar Sundhöll Hafnarfjarðar breytist í leikhús.
Sambandið milli kropps og vatns er rannsakað í seyðandi verki sem liggur á mörkum dans- og sviðslistar.
Hver er munurinn á fáklæddum líkama og fullklæddum líkama? Hver er munurinn á hreyfingum í vatni og upp úr vatni? Verkið er óður til líkamans, í öllu sínu veldi; fellingar, hrukkur, appelsínuhúð, gæsahúð, skvabb, mjúkar línur, beinaber svæði
Í sundi. Kaltkaltkaltkaltkalt.
HRISTA HÚÐ
HRISTA MJAÐMIR
HRISTA BRJÓST
Ég hleyp á sleipum sundlaugarbakkanum. Bannað að hlaupa. Gæsahúð. Hvaðan kom öll þessi möl? Ég held um magann/brjóstin, get ekki beðið eftir að komast ofan í 39° heitt vatnið. Ahhh sleppi takinu á magavöðvunum og anda léttar. Ég er hólpin...
-nei hæ, þú hér?
Leikkonurnar, dansararnir og söngkonurnar Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir mynda sviðslistahópinn Gleym-mér-ei. Þær elska að vinna í stóru stúdíói þar sem þær geta dansað og hlaupið út um allt. Þær vinna mikið með spuna, fylgja innsæinu og elta flæðið í sköpunarferlinu. Í lok vikunnar er svo algjört möst að skála í góðu freyðivíni og gera upp vikuna.
Konukroppar er þeirra fyrsta verk en alls ekki það síðasta!
Höfundar og flytjendur: Snædís Lilja Ingadóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Kvennakór: Graduale Nobili
Forget-me-not - Snædís Lilja Ingadóttir & Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Femme Physique
Sunday 15th November 12:00 - 12:50
Hafnarfjörður Swimming Pool, Herjólfsgata 10b
A site-specific choreographic performance for two performers, a local female choir and a swimming pool.
The piece explores the relationship between body and water from a female perspective. The work takes place in a swimming pool (or optionally at other spaces of leisure) where bodies gather and share a moment of tranquility. An ode to the unapologetic female body; wrinkles, cellulite, goosebumps, soft and hard lines, thin and thick skin.The body is beautiful. Enjoy it! Dive in! Dance on the bank! Let yourself float...
Together Snædís Lilja and Sigríður Ásta are the performance duo Forget-me-not. As a duo they come from different artistic backgrounds; Snædís has worked as a dancer all her professional life (and longer) and Sigríður originally trained in classical singing. On top of this they are both actors. Femme Physique, their first piece together, combining their artforms.
3900 - 6900 ISK
Authors & performers: Snædís Lilja Ingadóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Femail choir: Graduale Nobili